19.04.2012 01:30

Uppsveitadeild og fleira


 

Jæja þá reynir á kappan á föstudagskvöldið kemur, þá er fimmgangskeppni í Uppsveitadeildinni. Þetta fer að verða hálfpínlegt að mæta alltaf með sama hestinn alveg sama hvaða prógram er í gangi, smali, fjórgangur eða fimmgangur, en það er nú bara svona þegar maður hefur bara einn hest sem er öruggur með að klára prógrammið sitt þó hann skori ekki nema meðaleinkunnir, þá klárar hann alltaf sitt, hlýðinn og þjáll.  Svo er það nú bara þannig að ef maður tekur ekki þátt í móti þá fær maður EKKI reynslu af því móti, sama hvort gekk vel eða illa.  Það koma alltaf upp einhver atriði sem hægt er að læra af, góð eða slæm.  Annars er keppni í hestaíþróttum (fjórg. fimmg. tölt) svolítið skrítin ef maður spáir í það.  Þarna ríða um völlinn prúðbúnir knapar á fínpússuðum hestum með öngva skítaligt heldur dýrindis sjampó ilm.  Og í hverju skildi nú keppnin felast? Jú, að vera FLOTTASTUR.  Soldið spes ef maður skoðar þetta svona utanfrá.  En eitt það besta er nú samt að þarna keppa karlar og konur saman á vellinum á jafnréttisgrundvelli.  Og að lokum, GLEÐILEGT SUMAR.
  • 1

Vafraðu um

Eigandi og ræktandi

Nafn:

Bjarni Gunnlaugur Bjarnason

Farsími:

893-5512

Afmælisdagur:

23 nóvember

Heimilisfang:

Skeiðháholt 3

Staðsetning:

Skeiðum, Skeiða og Gnúpverjahr.

Heimasími:

486-5512

Tenglar

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 28
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 64766
Samtals gestir: 13582
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 21:14:20