09.02.2012 07:43Hvað er í gangi?Þið hafið kannski tekið eftir því að lítið hefur verið skrifað inná vefinn síðustu mánuði. Þar er um að kenna bæði lötum penna og lélegri myndavél sem sífellt er orðin rafmagnslaus og þar sem ég hef ekki einhvern snilling með flotta vél til að taka myndir fyrir mig þá vill nú útkoman verða svona. Að loknum þessum ágætu afsökunum þá er rétt að fara yfir það hvað er í gangi hér á bæ. Það eru 5 hestar í tamningu og eða þjálfun frá Bjarna bónda. Bylgja Gauks er með hann Ljúf undan Díönu og Tý. Þegar þetta er skrifað erum við ekki farnir að skoða hann frá því fyrir áramót en ekki eigum við von á öðru en þar sé allt í toppstandi enda Bylgja frábær knapi og þjálfari. Hjá Karenu Líndal eru 3 hestar. Það eru Stjarni undan Glym og Gerplu Gassadóttur, Jarl undan Díönu og Dyn frá Hvammi og Magni undan Ferju Þokkadóttur og Kolvið Andvarasyni. Jarl og Stjarni fóru snemma í haust til Karenar og eru í fínu standi og stöðugri framför. Magni fór seint í haust til hennar og var dáldið feitur enda búinn að standa í eitt og hálft ár, en við Bjarni sáum til hans hér heima þar sem hann öslaði snjóinn og hreifingarnar sem klárinn sýndi okkur voru þess eðlis að það þótti ótækt annað en skella honum í þjálfun til Karenar. Einn hestur er enn óupptalinn en það er hann Léttir undan Ferju og Galsa. Það er smá hrakfallasaga sem fylgir honum, en í stuttu máli þá kom í ljós í haust þegar Siggi Óli á Fákshólum byrjaði að þjálfa hann að klárinn var með brotinn jaxl í efri góm og þurfti að fjarlægja tönnina. Léttir er því búinn að vera heima við síðustu 2 mánuði fyrir utan hálfan mánuð í Hólaborg í þrek þjálfun. Við fórum síðan í gærkvöldi með hann til Sigga Óla og þar verður hann ef allt er í lagi til vorsins. Það þarf náttúrulega ekki að taka það fram að allir þessir hestar eru graðir, hvað annað. ég læt hér fylgja með 2 myndir af Stjarna teknar fyrir skömmu í Leirársveitinni. Hér heima við er svo verið að þjálfa fyrir Uppsveitadeildina. Jú jú, það er nú svo að ég ákvað að slá til og spreyta mig á keppni í Uppsveitadeildinni í vetur. Fyrir þá sem ekki vita þá er það mótaröð hjá þremur hestamannafélögum í uppsveitum Árnessýslu, þeim Loga, Smára og Trausta. Þetta eru 7 þriggja manna lið og keppt er á 4 mótum. Keppt er í Smala (þrautabraut), fjórgangi, fimmgangi og síðast í tölti og skeiði. Ég er með 2 hesta í þetta verkefni. Það eru Vífill, undan Rakel heitinni (sem nú er látin) og Keili frá Miðsitju. Hann á að sjá um Smalann, fimmganginn, skeiðið og jafnvel töltið. Draupnir, undan Glym Hrafnssyni og Ferju Þokkadóttur mun svo sjá um fjórganginn. Þjálfun gengur svona þokkalega og klárarnir eru að komast í ágætis form, svo verður bara að koma í ljóst hvernig gengur. Fyrsta mót átti að vera í lok jan. í Smala, en vegna veðurs var því frestað fram í byrjun mars. Þannig að fyrsta mót verður í fjórgangi þann 24. febrúar. Læt ég hér lokið þessari yfirferð og vonandi líður ekki svona langt á milli skrifa næst. Góðar stundir. Skrifað af Gunni Jóns |
Vafraðu umEldra efni Eigandi og ræktandi Nafn: Bjarni Gunnlaugur BjarnasonFarsími: 893-5512Tölvupóstfang: bjarnigb@simnet.isAfmælisdagur: 23 nóvemberHeimilisfang: Skeiðháholt 3Staðsetning: Skeiðum, Skeiða og Gnúpverjahr.Heimasími: 486-5512Tenglar
Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 95 Gestir í gær: 15 Samtals flettingar: 60100 Samtals gestir: 12655 Tölur uppfærðar: 10.2.2012 00:07:26 |